Fyrir húsfélög og fjölbýli
Hleðsla í bílakjallaranum.
Stjórnin innheimtir ekkert.
Hver íbúi greiðir fyrir sína hleðslu og húsfélagið fær rafmagnið af sameiginlega mælinum endurgreitt í hverjum mánuði.

Stjórn húsfélags á ekki að vera innheimtudeild
Þegar íbúar hlaða af sameiginlegum mæli þarf einhver að skipta kostnaðinum, rukka og svara spurningum. Hjá Hladdu er það okkar verk.
Réttlát skipting
Hver hleðsla skráist á bíl eða kort íbúans og hver greiðir fyrir sína notkun eftir mæli.
Rafmagnið endurgreitt
Hladdu selur íbúum rafmagnið í eigin nafni. Í hverjum mánuði fær húsfélagið kreditreikning fyrir rafmagnið sem fór í hleðslu af sameiginlega mælinum, með einni línu fyrir hvert kort og yfirliti.
Engin innheimta hjá stjórninni
Íbúar fá mánaðarlegan reikning og kröfu í heimabankann eða greiða með korti. Húsfélagið gefur engan reikning út sjálft.
Yfirsýn fyrir stjórnina
Umsjónarmenn sjá stöðvarnar, aflið í rauntíma og notkun mánaðarins. Íbúar sjá aðeins sína eigin hleðslu á Mínum hleðslum.
Gestir og leigjendur
Gestir greiða með korti á stöðinni eftir QR-kóða og leigjendur geta fengið fyrirframgreitt kort.
Heimtaugin ræður
Við metum hvað heimtaugin þolir og stillum álagsstýringuna svo stöðvarnar deili rafmagninu sem er til.

Eru stöðvar þegar í húsinu?
Í flestum tilvikum getum við tengt stöðvar sem tala OCPP beint við kerfið okkar og tekið við rekstrinum, hvar sem þær voru keyptar. Ef tegundin er ný fyrir okkur prófum við hana fyrst með ykkur.
Íbúi í húsi sem er þegar með Hladdu? Skráðu þig á stöð, eða lestu algengar spurningar.