Fyrir fyrirtæki og stofnanir

Flotinn hleður sig sjálfur.
Kortin heyra sögunni til.

Bíllinn kynnir sig sjálfur þegar hleðslukapallinn er tengdur. Hver kílóvattstund skráist á réttan bíl og réttan bílstjóra.

Hleðslustöðvar á bílastæði fyrirtækis

Fyrirtæki með marga bíla og margar stöðvar lendir fljótt í sömu stöðu

Bunki af hleðslukortum í umferð, enginn veit lengur hvaða kort er hjá hverjum og rafmagnsreikningurinn sýnir eina heildartölu. Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) leysir þetta frá grunni.

CTEK-stöðvar í röð á stálvegg við bílastæði fyrirtækis

Umsýslan hverfur

Kort þarf að panta, afhenda, skrá, afskrá þegar fólk hættir og endurnýja þegar þau týnast. Bíll er skráður einu sinni. Óþekktur bíll sem stungið er í samband birtist sjálfkrafa í kerfinu og er skráður með einum smelli.

Misnotkun verður erfið

Hleðslukort má lána, gleyma í jakka eða afrita. Algengustu kortin bera ódulkóðað auðkenni sem venjulegur sími les. Bíllinn er bíllinn, og á stöð sem krefst auðkenningar fær óþekktur bíll enga hleðslu.

Yfirsýnin verður raunveruleg

Hver hleðsla er skráð á bíl og bílstjóra. Mánaðarskýrsla í Excel eða PDF, sundurliðuð eftir bílum. Stjórnendur sjá stöðvarnar í rauntíma og Hladdu vaktar þær, fær viðvörun og bregst við ef stöð dettur úr sambandi.

Fyrir launadeildina, ekki bara bílstjórana

Þegar starfsfólk hleður eigin bíl á vinnustaðnum setur fyrirtækið mánaðarlegt þak á kort hvers starfsmanns. Launadeildin sér samtölu hvers korts fyrir mánuðinn og hve mikið fór umfram þakið, og getur fært það beint á launaseðil. Enginn þarf að lesa af stöðvum eða giska.

Tilbúið dæmi, ekki verðskrá

Segjum að þakið sé 15.000 kr. á mánuði.

Starfsmaður hleður þá fyrir 21.400 kr. Fyrirtækið greiðir 15.000 kr. og launadeildin fær mánaðarsamtölu kortsins: kílóvattstundir, heildarupphæð og 6.400 kr. umfram þakið. Þakið, og hvort það er yfirleitt, velur fyrirtækið sjálft.

Vaktir allan sólarhringinn, stöðvar á mörgum stöðum

Bíllinn sem kemur inn klukkan þrjú um nótt fær hleðslu án þess að nokkur sé á skrifstofunni. Verktakar og gestir borga með greiðslukorti á staðnum og engin pilla fer í umferð nema þess sé óskað.

  • Stöðvar á öllum starfsstöðvum í einu yfirliti
  • Hladdu vaktar stöðvarnar og bregst við ef stöð er úr sambandi í meira en hálftíma
  • Álagsstýring svo stöðvarnar deili rafmagninu sem er til
  • Hleðslutímar sem þið stillið, til dæmis utan háannatíma
  • Gestir greiða með korti á staðnum, ónotuð upphæð endurgreidd
  • Reikningar og mánaðarskýrslur beint í bókhaldið

Hvað virkar, og hvað ekki?

Sjálfvirk hleðsla (Autocharge) byggir á auðkenni sem bíllinn sendir sjálfur yfir hleðslukapalinn. Hvort bíll geri það í venjulegri hleðslu fer eftir tegund og hugbúnaði bílsins, og því lofum við engu fyrirfram: við prófum bílaflotann ykkar á stöð áður en nokkuð er sagt.

Bíll sem sendir auðkennið sitt

Skráður einu sinni. Eftir það stingur bílstjórinn í samband og hleðslan fer af stað og skráist á bílinn, án korts og án apps.

Bíll sem gerir það ekki

Fær að sjálfsögðu RFID-lyklakippu og hleður á sömu stöð. Hvort tveggja gengur hlið við hlið í sama flota og ekkert er því til fyrirstöðu að hafa blandað umhverfi.

Tuttugu mínútur, á staðnum eða á fjarfundi

Sendu okkur tegundir bílanna ykkar, þá segjum við hverjir hlaða sjálfkrafa og hverjir fá lyklakippu og prófum það sem er óvíst á stöð. Kerfið er í daglegri notkun hjá íslenskum fyrirtækjum í dag.