Hladduhleðslulausnir

Viðskiptaskilmálar

Í gildi frá 27. ágúst 2026 · eTronica ehf., kt. 411214-1330

1. Þjónustan

Hladdu (rekið af eTronica ehf.) setur upp og rekur AC-hleðslustöðvar og annast mælingar, skráningu og innheimtu hleðslna. Aðgangur að hleðslu er veittur með sjálfvirkri hleðslu (Autocharge), skráðu hleðslukorti eða fjarræsingu í vefgátt Hladdu.

2. Verð og uppgjör

Verð á kílóvattstund er samningsbundið og kemur fram í samningi hvers staðar eða viðskiptavinar. Hleðslur eru gerðar upp mánaðarlega eftir á, samkvæmt mældri notkun. Reikningar eru gefnir út rafrænt.

3. Skráning bíla og korta

Notandi ber ábyrgð á að bílar og hleðslukort séu rétt skráð á sinn aðgang. Tilkynna skal Hladdu án tafar um týnd eða stolin kort, og er kortum þá lokað. Notkun sem á sér stað fyrir tilkynningu telst notkun viðkomandi aðgangs.

4. Ábyrgð

Hladdu leitast við að tryggja að hleðslustöðvar séu aðgengilegar og virkar, en ábyrgist ekki órofna þjónustu. Hladdu ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni sem rekja má til þjónusturofs. Um búnað í eigu viðskiptavinar fer samkvæmt samningi.

5. Uppsögn

Um uppsagnarfrest fer samkvæmt samningi hvers viðskiptavinar. Við lok viðskipta eru ógreiddar hleðslur gerðar upp með lokareikningi.

6. Breytingar á skilmálum

Hladdu getur breytt skilmálum þessum með eins mánaðar fyrirvara. Tilkynnt er um breytingar á hladdu.is og í vefgáttinni.

7. Samskipti

Fyrirspurnir og athugasemdir: hallo@hladdu.is eða í síma 659 0050.