Hladdu.is í símann
Það er ekkert app í App Store eða Play Store. Þú setur Hladdu.is (Mínar hleðslur) á heimaskjáinn í símanum og það opnast á öllum skjánum, án veffangastiku vafrans, með sinni eigin táknmynd.
iPhone og iPad
Einfaldast er að gera þetta í Safari.
- Opnaðu portal.hladdu.is/my í Safari.
- Ýttu á deilihnappinn (ferning með ör upp úr): hann er neðst í Safari á iPhone, efst á iPad.
- Veldu „Add to Home Screen“ (bæta við heimaskjá).
- Ýttu á „Add“ (bæta við).
Táknmyndin „Mínar hleðslur“ birtist þá á heimaskjánum. Opnaðu hana þaðan og skráðu þig inn: sláðu inn netfangið þitt, ýttu á „Senda innskráningarhlekk“ og sláðu svo innskráningarkóðann úr póstinum inn í Hladdu.is á heimaskjánum. Hlekkurinn í póstinum opnast í Safari, ekki í Hladdu.is á heimaskjánum, svo notaðu kóðann.
Android
- Opnaðu portal.hladdu.is/my í Chrome.
- Ef Chrome býður upp á uppsetningarglugga neðst á skjánum, taktu boðinu.
- Ef sá valkostur birtist ekki, ýttu á punktana þrjá efst til hægri og veldu „Setja upp forrit“ eða „Bæta við heimaskjá“.
- Ýttu á „Setja upp“.
Skráðu þig svo inn eins og í vafranum: bæði hlekkurinn úr tölvupóstinum og sex stafa kóðinn virka.
Hvað er hægt í símanum?
Allt sem hægt er að gera í vefgáttinni er líka hægt í símanum.
Á stöðvum sem eru beintengdar Hladdu geta umsjónarmenn hleðslustaða og eigendur hleðslustöðva ræst og stöðvað hleðslu, losað kapalinn, notað rofann „Halda kapli læstum í stöðinni (líka utan hleðslu)“, tekið stöð úr rekstri og sett hana aftur í gang, endurræst hana og séð hver er að hlaða hverju sinni.
Íbúar með skráð kort sjá sína eigin hleðslusögu og kortin sín.
Skrár (CSV, Excel og PDF) er líka hægt að sækja í símanum.
Nýr notandi
Nýskráning fer fram á portal.hladdu.is/p. Þeir sem þegar eru með aðgang skrá sig inn á portal.hladdu.is/my. Spurningum er svarað á hallo@hladdu.is.
Eftir innskráningu eru nánari leiðbeiningar undir „Leiðbeiningar“ í gáttinni.