Fyrir söluaðila og rafverktaka

Þið seljið stöðina.
Hladdu sér um reksturinn.

Rekstur, innheimta og þjónusta við notendur fyrir stöðvarnar sem þið seljið, á íslensku og með íslenskum reikningum.

Viðskiptavinurinn spyr alltaf sömu spurningarinnar: hver rukkar?

Húsfélag eða fyrirtæki sem kaupir hleðslustöðvar þarf líka einhvern til að skrá notendur, skipta kostnaðinum og innheimta. Hladdu gerir það, svo þið getið selt stöðina með lausn sem virkar frá fyrsta degi.

Tengist yfir OCPP

Stöðvar sem tala OCPP tengjast beint við kerfið, óháð framleiðanda. Ef tegundin er ný fyrir okkur prófum við hana fyrst með ykkur.

Íslenskir reikningar

Notendur fá mánaðarlegan reikning og kröfu í heimabankann eða greiða með korti. Húsfélög fá rafmagnið endurgreitt með kreditreikningi.

Gestir greiða með QR-kóða

Gestir greiða með korti á stöðinni og það sem ekki er notað er endurgreitt á sama kort.

Sjálfvirk hleðsla

Bíllinn er auðkennið og RFID-kort og lyklar virka hlið við hlið á sömu stöð.

Yfirsýn fyrir eigendur

Umsjónarmenn sjá stöðvarnar, aflið í rauntíma og notkunina á Mínum hleðslum, með skýrslum í CSV, Excel og PDF.

Vöktun og þjónusta

Við vöktum stöðvarnar, fáum tilkynningu ef stöð dettur út og svörum notendum í síma og tölvupósti.

Eitt kerfi, þrjú sjónarhorn

Sama kerfið þjónar gestinum við stöðina, íbúanum heima og þeim sem rekur staðinn. Hver og einn sér það sem hann þarf og ekkert umfram það. Allt opnast í vafra, á síma eða tölvu.

Gesturinn

Skannar, greiðir og fylgist með

Síminn opnar síðu stöðvarinnar beint af QR-kóðanum. Gesturinn sér kílóvattstundirnar fyllast og kostnaðinn í krónum á meðan bíllinn hleður, og getur stöðvað hleðsluna sjálfur.

Íbúinn

Sér sína notkun, mánuð fyrir mánuð

Á Mínum hleðslum er hver hleðsla skráð með tíma, kílóvattstundum og verði. Mánuðirnir raðast upp í súlurit, svo það sést strax hvort veturinn kostar meira en sumarið.

Rekstraraðilinn

Heldur utan um allar stöðvarnar og uppgjörið

Í gáttinni sést hvaða stöðvar eru tengdar, hve mikið afl fer út yfir daginn og hvað mánuðurinn gerir upp: reikningar til notenda, kreditreikningur til húsfélagsins og greiðslur gesta.

Myndirnar sýna tilbúin dæmi. Nöfn og tölur eru ekki raunveruleg gögn.

Svona vinnum við saman

Þið seljið og setjið upp stöðvarnar eins og áður. Við tengjum þær við kerfið, skráum bíla, kort og greiðendur og tökum við innheimtu og þjónustu. Viðskiptavinurinn fær eitt kerfi og einn reikning á íslensku.

Nánar um húsfélög og fyrirtæki.

Kíkjum í heimsókn

Við komum og sýnum kerfið á tuttugu mínútum, á staðnum eða á fjarfundi, og förum yfir hvernig það passar við stöðvarnar sem þið seljið.