Persónuverndarstefna
eTronica ehf., kt. 411214-1330, ábyrgðaraðili vinnslu
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Til að reka hleðsluþjónustuna skráum við: nafn, netfang, símanúmer og kennitölu greiðanda; auðkenni hleðslukorta og bíla (t.d. Autocharge-auðkenni); og hleðslusögu, hvaða stöð, hvenær, hve mikil orka og hvaða verð. Innskráning í vefgáttina notar netfang og nauðsynlegar vafrakökur fyrir innskráningarlotuna.
Til hvers?
Til að afhenda þjónustuna: ræsa og skrá hleðslur, gera upp notkun, gefa út reikninga og sýna notendum eigin notkun. Reikningagerð fer um bókhaldskerfið Payday. Við seljum aldrei persónuupplýsingar og deilum þeim ekki með þriðja aðila umfram það sem reikningagerð og lögbundnar skyldur krefjast.
Geymsla og öryggi
Gögn eru geymd í gagnaveri innan EES. Aðgangur að stjórnkerfum er bundinn við starfsmenn með aðgangsorð, og umsjónarmenn staða sjá aðeins sinn stað. Hleðslusaga er geymd á meðan viðskiptasamband varir og eins og bókhaldslög krefjast.
Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að eigin gögnum, leiðréttingu og eyðingu þeirra sem ekki er skylt að varðveita. Erindum er svarað á hallo@hladdu.is. Athugasemdum við vinnslu má einnig beina til Persónuverndar (personuvernd.is).