Hjálp og algengar spurningar

Hér eru svör við því sem notendur og stjórnir húsfélaga spyrja oftast um. Ef þú finnur ekki svarið skaltu hringja í 790 0505 eða senda póst á hallo@hladdu.is.

Að byrja

Hvernig skrái ég mig á stöð?
Opnaðu portal.hladdu.is/p, finndu stöðina eftir heiti eða númeri á límmiðanum og sæktu um aðgang. Við förum yfir umsóknina og höfum samband. Ef þú ert þegar með aðgang skráirðu þig inn á Mínum hleðslum með netfanginu þínu.
Þarf ég app?
Nei. Mínar hleðslur er vefsíða sem virkar í öllum símum og tölvum. Þú getur sett hana á heimaskjáinn og opnað hana eins og app. Leiðbeiningar eru á síðunni Hladdu.is í símann.
Bíllinn minn styður ekki Autocharge. Hvað þá?
Þá færðu hleðslukort sem þú berð að stöðinni. Kort og Autocharge virka bæði á sömu stöðvum og allt skráist á sama greiðanda. Hægt er að skrá fleiri en einn bíl og fleiri en eitt kort á sama greiðanda.

Við hleðslu

Hleðslan fer ekki af stað
  • Gakktu úr skugga um að kapallinn sé vel tengdur, bæði í bílnum og stöðinni.
  • Athugaðu stillingar bílsins. Tímastillt hleðsla eða hleðslumörk (t.d. 80%) geta komið í veg fyrir að hleðsla hefjist.
  • Ef bíllinn notar Autocharge þarf hann að vera skráður á þig. Ef þú notar kort skaltu bera það að lesaranum.
  • Taktu kapalinn úr sambandi, bíddu í nokkrar sekúndur og settu hann aftur í samband.
  • Ef það dugar ekki skaltu hafa samband og gefa upp heiti stöðvarinnar, sem stendur á límmiðanum: 790 0505 eða hallo@hladdu.is.
Bíllinn hleður hægar en venjulega
Líklega eru fleiri bílar að hlaða á sama tíma. Þá skiptist aflið á milli þeirra svo heimtaugin ofhlaðist ekki, og bíllinn fær aftur fullt afl þegar hinir eru búnir. Bíllinn hægir líka sjálfur á hleðslunni þegar rafhlaðan er orðin nánast full.
Hleðslan hætti áður en bíllinn var fullur
Oftast hefur bíllinn náð hleðslumörkum sem eru stillt í honum sjálfum, til dæmis 80%. Á sumum stöðum er aðeins hægt að hlaða á ákveðnum tímum sólarhrings. Hleðsla á fyrirframgreiddu korti stöðvast þegar inneignin klárast og hjá gestum þegar keypt orka er búin.

Kort, gestir og greiðslur

Kortið týndist eða var stolið
Láttu okkur vita strax og við lokum kortinu á öllum stöðvum. Stöðvarnar geyma sjálfar lista yfir gild kort, svo lokað kort virkar ekki heldur á stöð sem hefur misst netsamband. Notkun fram að tilkynningu telst notkun á þínum aðgangi.
Hleðsla án aðgangs (gestir)
Skannaðu QR-kóðann á stöðinni, veldu upphæð (2.000, 5.000 eða 10.000 kr.) og greiddu með korti. Verð á kílóvattstund sést áður en þú greiðir og hleðslan stöðvast sjálfkrafa þegar keypt orka er búin. Það sem ekki er notað er endurgreitt á sama kort. Nánar í skilmálunum (5. gr.).
Hvernig greiði ég fyrir hleðsluna?
Eftir hver mánaðamót færðu rafrænan reikning fyrir hleðslu síðasta mánaðar og kröfu í heimabankann. Einnig má greiða reikninginn með korti í gegnum hlekk á honum eða vista kort á Mínum hleðslum. Vistað kort er aðeins skuldfært fyrir útgefnum reikningum, aldrei sjálfkrafa eftir áætlun.
Hvað er fyrirframgreitt hleðslukort?
Það er kort sem greitt er inn á fyrir fram, til dæmis fyrir gesti eða leigjendur. Þú fyllir á það á Mínum hleðslum (5.000 eða 10.000 kr.) og hleðslan dregst af inneigninni. Kortinu er lokað sjálfkrafa þegar inneignin klárast.

Fyrir stjórn húsfélags

Hvað sér stjórnin?
Umsjónarmenn sjá stöðvarnar á staðnum, aflið í rauntíma, notkun mánaðarins og kortin, eftir heiti eða síðustu fjórum stöfunum, en ekki hver á hvaða kort. Aðalumsjónarmenn sjá líka alla hleðslusöguna og geta skráð kort og stýrt stöðvunum. Íbúar sjá aðeins sína eigin hleðslu.
Hvað fær húsfélagið til baka?
Hladdu selur notendum rafmagnið í eigin nafni. Í hverjum mánuði fær húsfélagið kreditreikning fyrir rafmagnið sem fór í hleðslu af sameiginlega mælinum. Á honum er ein lína fyrir hvert kort og með fylgir yfirlit, svo stjórnin geti borið hann saman við notkun hvers íbúa. Húsfélagið þarf ekki að gefa út neinn reikning sjálft.
Við erum þegar með hleðslustöðvar. Getið þið tekið við þeim?
Í flestum tilvikum já. Við getum tengt CTEK- og DEFA-stöðvar beint við kerfið okkar. Ef þið eruð með aðra tegund: hafið samband og við skoðum málið.