Persónuverndarstefna

eTronica ehf., kt. 411214-1330, Þorrasölum 1-3, 201 Kópavogi, ábyrgðaraðili vinnslu. Síðast uppfært 15. október 2026.

This privacy policy is provided in Icelandic only; the Icelandic text governs. Questions in English are welcome at hallo@hladdu.is.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Til að reka hleðsluþjónustuna skráum við: nafn, netfang, símanúmer og kennitölu greiðanda; auðkenni hleðslukorta og bíla (t.d. auðkenni fyrir sjálfvirka hleðslu, Autocharge); og hleðslusögu (hvaða stöð, hvenær, hve mikil orka og hvaða verð), ásamt mæligögnum hleðslunnar eins og stöðin sendir þau, svo sem afli, straumi, spennu og hleðslustöðu rafhlöðu. Innskráning í vefgáttina notar netfang og nauðsynlegar vafrakökur fyrir innskráningarlotuna.

Á hladdu.is teljum við heimsóknir með Vercel Analytics og með eigin teljara eTronica (telja.etron.is). Hvorugur notar vafrakökur. Eigin teljarinn skráir síðuna, vefinn sem vísaði á hana, land, gerð tækis og vafra; IP-tala er ekki geymd og auðkenni gests breytist á hverjum sólarhring, svo einstakir gestir verða ekki raktir. Við notum aðeins samanlagðar tölur.

Gestir sem greiða fyrir hleðslu með QR-kóða á stöð gefa ekki upp nafn. Við skráum greiðslunúmer, upphæð, stöð og hleðsluna sjálfa, og netfang ef gestur gefur það upp til að fá kvittun. Kortaupplýsingar fara beint til færsluhirðis og berast okkur ekki.

Sá sem sækir um aðgang á vefnum áður en hann verður viðskiptavinur gefur upp nafn, netfang og símanúmer, og eftir atvikum heimilisfang, kennitölu og stæði eða íbúð, svo hægt sé að finna rétta stöð og afgreiða umsóknina. Umsókn er geymd á meðan hún bíður afgreiðslu og eftir það sem skrá um afgreiðsluna. Samþykkt umsókn verður hluti af viðskiptasambandinu.

Greiðslu- og umsóknarform sem krefjast ekki innskráningar eru varin gegn misnotkun. Í því skyni reiknum við lyklað tætigildi af IP-tölu sendanda og geymum það með greiðslunni eða umsókninni, svo takmarka megi fjölda beiðna frá sama sendanda. Með greiðslu er því eytt eftir sólarhring, með umsókn fylgir það umsókninni. IP-talan sjálf er ekki geymd.

Þegar kort eða bíll sem ekki er skráður hjá okkur reynir að hlaða á stöð skráum við auðkenni hans, stöðina og hvenær hann sást, svo hægt sé að skrá hann á réttan aðila eða hafna honum. Þegar auðkennið hefur verið skráð hverfur færslan af listanum. Hafni Hladdu auðkenninu er færslan falin en geymd áfram, svo það birtist ekki aftur. Hafni aðalumsjónarmaður því í Mínum hleðslum er færslunni eytt, en ný færsla verður til ef auðkennið sést aftur. Enginn fastur geymslutími gildir um færslurnar.

Stöðvarnar eiga í stöðugum samskiptum við kerfið og skeytin geta innihaldið auðkenni korts eða bíls. Skeytin eru geymd í 14 daga til bilanaleitar og þeim síðan eytt sjálfkrafa.

Til hvers?

Til að afhenda þjónustuna: ræsa og skrá hleðslur, gera upp notkun, gefa út reikninga og sýna notendum eigin notkun. Greiðslukortanúmer eru aldrei geymd í kerfum Hladdu. Við seljum aldrei persónuupplýsingar og deilum þeim ekki með öðrum en þeim sem lýst er hér að neðan, umfram það sem lögbundnar skyldur krefjast.

Vinnslan byggist á því að hún er nauðsynleg til að efna samning við viðskiptavini og gesti (b-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar), á lagaskyldu um færslu og varðveislu bókhalds (c-liður) og á lögmætum hagsmunum okkar af því að verja greiðslu- og umsóknarform gegn misnotkun (f-liður).

Hver sér hvað?

Notandi sér eigin hleðslur í Mínum hleðslum. Greiðandi korts sér hleðslur þess á reikningi og í sundurliðun sem fylgir honum.

Umsjónarmenn staðsetningar fá aðgang hjá Hladdu. Aðalumsjónarmaður getur sjálfur veitt aðgang þeim sem þegar tengjast staðsetningunni sem greiðendur eða umsjónarmenn, en nýr aðili fær aðeins aðgang með samþykki Hladdu. Þegar umsjónarmaður óskar eftir að bæta nýjum aðila við berast Hladdu nafn og netfang þess aðila, og beiðnin er geymd sem skrá um afgreiðsluna. Umsjónarmenn eru af tveimur gerðum. Aðalumsjónarmenn sjá alla hleðslusögu staðarins, þar á meðal á hvaða kort eða bíl hver hleðsla er skráð og hver greiðir fyrir hana. Aðrir umsjónarmenn sjá aðeins yfirlit staðarins: stöðvarnar, notkun mánaðarins og kortalista með heiti korts eða síðustu fjórum stöfum númers þess, en ekki hver á kortið.

Húsfélag sem fær rafmagnið endurgreitt fær kreditreikning með einni línu á hvert kort og yfirlit sem sundurliðar notkun eftir íbúum, svo það geti stemmt endurgreiðsluna af. Á reikningum, kreditreikningum og öðrum skjölum sem við sendum eru kortanúmer stytt í síðustu fjóra stafina og gestir koma fram sem ein lína án greiðslunúmera. Aðalumsjónarmenn geta hins vegar sótt hleðsluskrár staðarins í Mínum hleðslum og þar koma kortanúmer fram í heild.

Þar sem vinnuveitandi greiðir hleðslu starfsmanns upp að fastri fjárhæð á mánuði sjá vinnuveitandinn og starfsmaðurinn mánaðarlega notkun kortsins og hve mikið hún fer umfram þá fjárhæð, svo gera megi mismuninn upp í launavinnslu.

Vinnsluaðilar

Eftirtaldir aðilar vinna gögn fyrir okkar hönd og eingöngu í þeim tilgangi sem hér er lýst: Straumur, færsluhirðir sem tekur við kortagreiðslum og geymir vistuð greiðslukort; Payday, bókhaldskerfi sem reikningar og kreditreikningar eru gefnir út í, með nafni, kennitölu og netfangi greiðanda; Neon, sem hýsir gagnagrunninn í Frankfurt; Vercel, sem hýsir vefgáttina og hladdu.is og telur heimsóknir á hladdu.is; Fly.io, sem hýsir samskiptaþjón hleðslustöðvanna; og Resend, sem sendir tölvupóst, svo sem innskráningarhlekki og kvittanir.

Geymsla og öryggi

Gagnagrunnurinn er vistaður hjá Neon í Frankfurt í Þýskalandi og samskiptaþjónn hleðslustöðvanna keyrir hjá Fly.io í Stokkhólmi í Svíþjóð. Vercel og Resend eru bandarísk fyrirtæki og gögn sem þau vinna geta farið til Bandaríkjanna; Neon og Fly.io eru það einnig, en hjá þeim eru gögnin vistuð í Evrópu. Flutningur gagna til Bandaríkjanna byggist á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB eða á gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework).

Aðgangur að stjórnkerfum er bundinn við starfsmenn með aðgangsorð, og umsjónarmenn hleðslustaða sjá aðeins sinn stað. Hleðslusaga er geymd á meðan viðskiptasamband varir og svo lengi sem bókhaldslög krefjast. Mæligögn hleðslna, svo sem afl, straumur, spenna og hleðslustaða, eru geymd með hleðslusögunni.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að eigin gögnum, leiðréttingu þeirra og eyðingu þeirra gagna sem ekki er skylt að varðveita. Erindum er svarað á hallo@hladdu.is. Athugasemdum við vinnslu má einnig beina til Persónuverndar (personuvernd.is).