Viðskiptaskilmálar

Þessi útgáfa tekur gildi 13. nóvember 2026 · eTronica ehf., kt. 411214-1330

These terms of service are provided in Icelandic only; the Icelandic text governs. Questions in English are welcome at hallo@hladdu.is.

Fram til 13. nóvember 2026 gilda skilmálar frá 31. ágúst 2026. Þeir eru birtir neðar á þessari síðu.

Breytingar frá fyrri útgáfu (í gildi frá 31. ágúst 2026): Nýjar greinar um gestahleðslu með QR-kóða (5. gr.) og um fyrirframgreidd hleðslukort og áfyllingar (6. gr.). Í 2. gr. er DC-stöðvum og gestahleðslu bætt við. Í 3. gr. eru lágmarksfjárhæð umsýslugjalds og fast mánaðargjald á stöð eða tengil nefnd. Í 4. gr. er skýrt að vistað greiðslukort er aldrei skuldfært sjálfkrafa eftir tímaáætlun, heldur aðeins fyrir útgefnum reikningum. Í 9. og 11. gr. er vísað til endurgreiðslu ónotaðrar upphæðar og inneignar. Vefgáttin er nefnd sínu rétta nafni, Mínar hleðslur, og greinar eru endurnúmeraðar.

1. Seljandi þjónustunnar

Hladdu er vörumerki í eigu og rekstri eTronica ehf., kt. 411214-1330, Þorrasölum 1-3, 201 Kópavogi. Netfang: hallo@hladdu.is, sími 790 0505. Skilmálar þessir gilda um alla þjónustu sem veitt er undir merkjum Hladdu.

2. Þjónustan

Hladdu setur upp og rekur AC- og DC-hleðslustöðvar fyrir raf- og tengiltvinnbíla og annast mælingar, skráningu og innheimtu hleðslna. Aðgangur að hleðslu er veittur með sjálfvirkri hleðslu (Autocharge), skráðu hleðslukorti eða fjarræsingu í vefgátt Hladdu á portal.hladdu.is. Á stöðvum sem bera QR-kóða getur hver sem er einnig hlaðið án þess að stofna aðgang, með því að greiða fyrir fram með greiðslukorti (gestahleðsla, sjá 5. gr.).

3. Verð og uppgjör

Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt (24%). Verð á kílóvattstund er samningsbundið, kemur fram í samningi hverrar staðsetningar eða hvers viðskiptavinar og er sýnilegt notanda í vefgátt Hladdu áður en hleðsla hefst. Gjaldskrá stöðvar getur einnig falið í sér fast gjald á hverja hleðslu, mínútugjald og biðgjald fyrir tíma sem bíll stendur tengdur eftir að hleðslu lýkur.

Þar sem eftirfarandi gjöld eru innheimt koma þau fram sem sérstakir liðir á reikningi: umsýslugjald, sem er hlutfall af upphæð hleðslnanna; lágmarksfjárhæð umsýslugjalds, sem er innheimt í hverjum mánuði sem hlaðið er ef hlutfallið nær henni ekki; og fast mánaðargjald fyrir hverja hleðslustöð eða hvern tengil. Samningur staðsetningarinnar ræður því hvort notandi, húsfélag eða eigandi stöðvar greiði fasta mánaðargjaldið.

Hleðslur eru gerðar upp mánaðarlega eftir á, samkvæmt mældri notkun. Reikningar eru gefnir út rafrænt. Frá þessu eru tvær undantekningar: gestahleðsla er greidd fyrir fram á staðnum (5. gr.) og hleðsla á fyrirframgreiddu korti dregst af inneign kortsins (6. gr.). Hvorug er innheimt með reikningi.

4. Greiðslur og kortaöryggi

Greiða má reikninga með rafrænum hætti, þar á meðal með greiðslukorti. Kortafærslur eru unnar af vottuðum færsluhirði og fara um öruggar, dulkóðaðar greiðslusíður. Hladdu geymir aldrei kortanúmer eða önnur kortagögn í eigin kerfum.

Notandi getur vistað greiðslukort í Mínum hleðslum, vefgátt Hladdu, eða þegar hann greiðir reikning með greiðsluhlekk. Ekkert er dregið af kortinu þegar það er vistað. Með því að vista kortið heimilar notandi Hladdu að skuldfæra það fyrir útgefnum reikningum vegna hleðslu. Upphæðin er breytileg eftir notkun og kemur fram á reikningi hvers mánaðar. Kortið er aldrei skuldfært sjálfkrafa eftir tímaáætlun: starfsmaður Hladdu skuldfærir það aðeins fyrir reikningi sem þegar hefur verið gefinn út og ekki greiddur með öðrum hætti. Færsluhirðir geymir kortið og Hladdu fær aðeins tilvísun í það ásamt tegund korts, síðustu fjórum tölustöfum og gildistíma. Notandi getur hætt sjálfvirkri greiðslu eða fjarlægt kortið hvenær sem er í Mínum hleðslum, og tekur það gildi strax. Takist skuldfærsla ekki fær notandi tölvupóst með hlekk til að greiða reikninginn með öðrum hætti.

5. Gestahleðsla með QR-kóða

Gestur skannar QR-kóðann á stöðinni, velur upphæð, 2.000, 5.000 eða 10.000 kr., og greiðir með greiðslukorti á greiðslusíðu færsluhirðis. Áður en greitt er sýnir síðan verð á kílóvattstund með virðisaukaskatti, og einnig fast gjald á hleðslu og mínútugjald ef gjaldskrá stöðvarinnar ber slík gjöld. Þau gjöld dragast af upphæðinni eins og orkan og aldrei er tekið meira en greitt var eða tekið frá. Biðgjald er aldrei lagt á gest. Hleðslan stöðvast sjálfkrafa þegar keypt orka er uppurin, eða fyrr ef gestur stöðvar hana eða aftengir bílinn. Gestur getur gefið upp netfang og fær þá kvittun senda að hleðslu lokinni.

Greiðsla fer fram á annan af tveimur vegu, með beinni greiðslu eða með frátekningu. Við beina greiðslu er upphæðin skuldfærð af kortinu um leið og greitt er. Að hleðslu lokinni er sá hluti upphæðarinnar sem ekki nýttist endurgreiddur á sama kort. Hefjist hleðsla ekki innan 15 mínútna frá greiðslu er öll upphæðin endurgreidd. Endurgreiðsla er afgreidd eins fljótt og auðið er, að jafnaði innan 10 virkra daga, og getur tekið banka korthafa nokkra daga til viðbótar að birtast á kortinu.

Við frátekningu er upphæðin aðeins tekin frá á kortinu en ekki skuldfærð. Þegar hleðslan hefur nýtt um 80% af því sem frátekið er hækkar frátekningin um sömu upphæð og valin var, svo hleðsla geti haldið áfram. Það gerist að hámarki fjórum sinnum, þannig að frátekin upphæð verður aldrei meiri en fimmföld sú upphæð sem valin var. Hafni bankinn hækkun stöðvast hleðslan þegar frátekna upphæðin er uppurin. Að hleðslu lokinni er aðeins raunverulegur kostnaður hleðslunnar skuldfærður og afgangurinn losaður. Hefjist hleðsla aldrei er ekkert skuldfært og öll frátekningin losuð. Banki korthafa getur sýnt losaða upphæð sem frátekna í nokkra daga.

6. Fyrirframgreidd hleðslukort og áfyllingar

Hleðslukort getur verið fyrirframgreitt. Á það er fyllt hjá Hladdu eða með greiðslukorti í Mínum hleðslum, þar sem velja má áfyllingu upp á 5.000 eða 10.000 kr. Ekkert gjald leggst ofan á áfyllingu. Inneignin gildir eingöngu fyrir hleðslu á því korti sem fyllt var á og hleðsla dregst af henni á gildandi verði. Hleðsla á fyrirframgreiddu korti er ekki innheimt með reikningi. Þegar inneignin er uppurin lokast kortið sjálfkrafa og hleðsla sem stendur yfir er stöðvuð. Fari hleðsla fram úr inneigninni áður en hún stöðvast dregst mismunurinn af næstu áfyllingu. Kortið opnast aftur þegar inneignin er orðin jákvæð, nema því hafi verið lokað handvirkt vegna þess að það týndist eða var stolið.

Ónotuð inneign er endurgreidd þeim sem greiddi hana, sé þess óskað með beiðni á hallo@hladdu.is, til dæmis við uppsögn eða þegar korti er lokað. Endurgreiðsla er afgreidd eins fljótt og auðið er, að jafnaði innan 10 virkra daga.

7. Afhending þjónustu

Aðgangur að hleðslu er virkur um leið og notandi hefur verið skráður og staðfesting send, að jafnaði samdægurs. Gestahleðsla getur hafist strax og greiðsla hefur verið staðfest. Orkan afhendist jafnóðum við hleðslustöðina; engin vörusending á sér stað. Uppsetning hleðslustöðva fer fram samkvæmt tilboði og verkáætlun hvers verks.

8. Skráning bíla og korta

Notandi ber ábyrgð á að bílar og hleðslukort séu rétt skráð á aðgang hans. Tilkynna skal Hladdu án tafar um týnd eða stolin kort, og er kortum þá lokað. Notkun sem á sér stað fyrir tilkynningu telst notkun viðkomandi aðgangs.

9. Endurgreiðslur og athugasemdir

Telji viðskiptavinur reikning rangan skal hann senda athugasemd á hallo@hladdu.is innan 30 daga frá útgáfu reiknings. Reynist gjaldfærsla röng, t.d. vegna mæli- eða skráningarvillu, er hún leiðrétt og ofgreidd fjárhæð endurgreidd að fullu, á sama greiðslumáta og greitt var með þegar því verður við komið. Athugasemdum er svarað innan fimm virkra daga. Gestur getur sent athugasemd vegna greiðslu á sama netfang og tilgreinir þá greiðslunúmerið. Um endurgreiðslu ónotaðrar upphæðar af gestahleðslu fer samkvæmt 5. gr. og um ónotaða inneign samkvæmt 6. gr.

10. Ábyrgð

Hladdu leitast við að tryggja að hleðslustöðvar séu aðgengilegar og virkar, en ábyrgist ekki órofna þjónustu. Hladdu ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni sem rekja má til þjónusturofs. Um búnað í eigu viðskiptavinar fer samkvæmt samningi.

11. Uppsögn

Notandi getur sagt upp aðgangi sínum hvenær sem er með tilkynningu á hallo@hladdu.is. Um uppsagnarfrest þjónustusamninga fer samkvæmt samningi hvers viðskiptavinar. Við lok viðskipta eru ógreiddar hleðslur gerðar upp með lokareikningi og engin frekari gjöld innheimt. Ónotuð inneign á fyrirframgreiddu korti er endurgreidd sé þess óskað, sbr. 6. gr.

12. Breytingar á skilmálum

Hladdu getur breytt skilmálum þessum með eins mánaðar fyrirvara. Tilkynnt er um breytingar á hladdu.is og í vefgáttinni.

13. Lög og lögsaga

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur um viðskiptin sem ekki tekst að leysa með samkomulagi má bera hann undir Héraðsdóm Reykjaness. Neytendur geta einnig leitað til Neytendastofu eða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Skilmálar í gildi til 13. nóvember 2026

Útgáfa frá 31. ágúst 2026 · eTronica ehf., kt. 411214-1330

Síðari málsgrein 4. gr., um vistuð greiðslukort, bættist við 23. september 2026. Þessi útgáfa fjallar hvorki um gestahleðslu með QR-kóða né um fyrirframgreidd hleðslukort og áfyllingar.

1. Seljandi þjónustunnar

Hladdu er vörumerki í eigu og rekstri eTronica ehf., kt. 411214-1330, Þorrasölum 1-3, 201 Kópavogi. Netfang: hallo@hladdu.is, sími 790 0505. Skilmálar þessir gilda um alla þjónustu sem veitt er undir merkjum Hladdu.

2. Þjónustan

Hladdu setur upp og rekur AC-hleðslustöðvar fyrir raf- og tengiltvinnbíla og annast mælingar, skráningu og innheimtu hleðslna. Aðgangur að hleðslu er veittur með sjálfvirkri hleðslu (Autocharge), skráðu hleðslukorti eða fjarræsingu í vefgátt Hladdu á portal.hladdu.is.

3. Verð og uppgjör

Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt (24%). Verð á kílóvattstund er samningsbundið, kemur fram í samningi hverrar staðsetningar eða hvers viðskiptavinar og er sýnilegt notanda í vefgátt Hladdu áður en hleðsla hefst. Þar sem umsýslugjald er innheimt kemur það fram sem sérstakur liður á reikningi. Hleðslur eru gerðar upp mánaðarlega eftir á, samkvæmt mældri notkun. Reikningar eru gefnir út rafrænt.

4. Greiðslur og kortaöryggi

Greiða má reikninga með rafrænum hætti, þar á meðal með greiðslukorti. Kortafærslur eru unnar af vottuðum færsluhirði og fara um öruggar, dulkóðaðar greiðslusíður. Hladdu geymir aldrei kortanúmer eða önnur kortagögn í eigin kerfum.

Notandi getur vistað greiðslukort á Mínum síðum eða þegar hann greiðir reikning með greiðsluhlekk. Með því heimilar hann Hladdu að skuldfæra kortið fyrir mánaðarlegum reikningum vegna hleðslu. Upphæðin er breytileg eftir notkun og kemur fram á reikningi hvers mánaðar, sem er gefinn út áður en kortið er skuldfært. Færsluhirðir geymir kortið og Hladdu fær aðeins tilvísun í það ásamt síðustu fjórum tölustöfum og gildistíma. Notandi getur hætt sjálfvirkri skuldfærslu eða fjarlægt kortið hvenær sem er á Mínum síðum, og tekur það gildi strax. Takist skuldfærsla ekki fær notandi tölvupóst með hlekk til að greiða reikninginn með öðrum hætti.

5. Afhending þjónustu

Aðgangur að hleðslu er virkur um leið og notandi hefur verið skráður og staðfesting send, að jafnaði samdægurs. Orkan afhendist jafnóðum við hleðslustöðina; engin vörusending á sér stað. Uppsetning hleðslustöðva fer fram samkvæmt tilboði og verkáætlun hvers verks.

6. Skráning bíla og korta

Notandi ber ábyrgð á að bílar og hleðslukort séu rétt skráð á aðgang hans. Tilkynna skal Hladdu án tafar um týnd eða stolin kort, og er kortum þá lokað. Notkun sem á sér stað fyrir tilkynningu telst notkun viðkomandi aðgangs.

7. Endurgreiðslur og athugasemdir

Telji viðskiptavinur reikning rangan skal hann senda athugasemd á hallo@hladdu.is innan 30 daga frá útgáfu reiknings. Reynist gjaldfærsla röng, t.d. vegna mæli- eða skráningarvillu, er hún leiðrétt og ofgreidd fjárhæð endurgreidd að fullu, á sama greiðslumáta og greitt var með þegar því verður við komið. Athugasemdum er svarað innan fimm virkra daga.

8. Ábyrgð

Hladdu leitast við að tryggja að hleðslustöðvar séu aðgengilegar og virkar, en ábyrgist ekki órofna þjónustu. Hladdu ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni sem rekja má til þjónusturofs. Um búnað í eigu viðskiptavinar fer samkvæmt samningi.

9. Uppsögn

Notandi getur sagt upp aðgangi sínum hvenær sem er með tilkynningu á hallo@hladdu.is. Um uppsagnarfrest þjónustusamninga fer samkvæmt samningi hvers viðskiptavinar. Við lok viðskipta eru ógreiddar hleðslur gerðar upp með lokareikningi og engin frekari gjöld innheimt.

10. Breytingar á skilmálum

Hladdu getur breytt skilmálum þessum með eins mánaðar fyrirvara. Tilkynnt er um breytingar á hladdu.is og í vefgáttinni.

11. Lög og lögsaga

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur um viðskiptin sem ekki tekst að leysa með samkomulagi má bera hann undir Héraðsdóm Reykjaness. Neytendur geta einnig leitað til Neytendastofu eða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.