Lausnir fyrir hleðslu.
Íbúar, starfsfólk og gestir á sömu stöð.

Gestir greiða með QR-kóða, álagsstýring verndar heimtaugina og allir sjá sína notkun í einni vefgátt.

Hleðsla á almenningsstöðum, fyrir alla sem koma

Stöð á almenningsstað á að vera jafn einföld og stöðumælir. Gesturinn skannar QR-kóðann á skjánum, greiðir með korti í símanum og bíllinn byrjar að hlaða. Ekkert app að sækja, enginn aðgangur að stofna og ekkert kort í veskinu.

Þetta hentar við hótel og gistiheimili, verslanir, sundlaugar, félagsheimili og bílastæði sveitarfélaga. Íbúar og starfsfólk hlaða áfram sjálfvirkt með Autocharge eða korti, en gestir fá sína eigin leið að sömu stöð.

  • Skanna og hlaðaKóðinn leiðir beint á greiðslusíðu stöðvarinnar. Verðið stendur á skjánum, með virðisaukaskatti, áður en nokkuð er greitt.
  • Greitt fyrir fram, afgangurinn endurgreiddurGesturinn velur upphæð og hleður fyrir hana. Það sem ekki er notað fer aftur inn á kortið.
  • Staðurinn fær sittGesturinn fær kvittun og eigandi staðarins fær rafmagnið sem gestir nota greitt mánaðarlega, á því verði sem samið er um.
Setja upp stöð fyrir almenning
DEFA-hleðslustöð með kapli. Á skjánum er Hladdu-merkið, QR-kóði fyrir gesti, allt að 12 kW og gestaverð 39 kr. á kWst. með virðisaukaskatti
DEFA-stöð með Hladdu-skjá. QR-kóðinn hér er sýnishorn; á stöðinni sjálfri leiðir hann beint á greiðslusíðu hennar.

Ekkert yfirálag á heimtaugina

Þegar margir bílar hlaða í einu skiptist aflið á milli þeirra. Þannig fer notkunin aldrei yfir það sem heimtaugin þolir og öryggin slá ekki út. Allir bílar hlaða, bara hægar þegar margir eru tengdir.

CTEK-stöðvarnar stýra álaginu sín á milli á staðnum (NANOGRID), svo álagsstýringin virkar líka þótt netsamband rofni.

Við styðjum bæði fasta („static“) og kvika („dynamic“) álagsstýringu, líka þegar stöðvar frá ólíkum framleiðendum eru á sama stað, svo þið eruð ekki bundin einum framleiðanda. Skilyrði er að stöðvarnar styðji álagsstýringu um OCPP og séu ekki læstar við kerfi framleiðandans.

Tveir bílar í hleðsluhvor fær helming aflsins
Fjórir bílar í hleðsluhver fær fjórðung aflsins
Ramminn sýnir hámarksafl heimtaugarinnar. Bílarnir deila því á milli sín.

Eitt kerfi, þrjú sjónarhorn

Sama kerfið þjónar gestinum við stöðina, íbúanum heima og þeim sem rekur staðinn. Hver og einn sér það sem hann þarf og ekkert umfram það. Allt opnast í vafra, á síma eða tölvu.

Gesturinn

Skannar, greiðir og fylgist með

Síminn opnar síðu stöðvarinnar beint af QR-kóðanum. Gesturinn sér kílóvattstundirnar fyllast og kostnaðinn í krónum á meðan bíllinn hleður, og getur stöðvað hleðsluna sjálfur.

Íbúinn

Sér sína notkun, mánuð fyrir mánuð

Á Mínum hleðslum er hver hleðsla skráð með tíma, kílóvattstundum og verði. Mánuðirnir raðast upp í súlurit, svo það sést strax hvort veturinn kostar meira en sumarið.

Rekstraraðilinn

Heldur utan um allar stöðvarnar og uppgjörið

Í gáttinni sést hvaða stöðvar eru tengdar, hve mikið afl fer út yfir daginn og hvað mánuðurinn gerir upp: reikningar til notenda, endurgreiðsla til húsfélagsins og greiðslur gesta.

Myndirnar sýna tilbúin dæmi. Nöfn og tölur eru ekki raunveruleg gögn.