Verð.
Sniðið að aðstæðum ykkar.

Hér sérðu hvað er í boði og hvernig notendur greiða. Sendu okkur línu og við gerum tilboð, án skuldbindinga.

Við bjóðum upp á AC-hleðslustöðvar fyrir venjulega rafbílahleðslu, allt að 22 kW. Það er tilvalið þar sem bílarnir standa yfir nóttina eða yfir daginn, hvort sem er heima, við vinnustaðinn eða í fjölbýli. Fyrir fyrirtæki og stærri notendur bjóðum við einnig DC-hraðhleðslustöðvar fyrir staði þar sem bílar þurfa að komast hratt af stað aftur. Stöðvarnar sjálfar getum við útvegað í gegnum samstarfsaðila okkar, Sér Tækni, á ser.is.

Verð fer eftir uppsetningu og fyrirkomulagi. Hjá húsfélögum selur Hladdu notendum rafmagnið í eigin nafni og endurgreiðir húsfélaginu mánaðarlega það rafmagn sem hleðslan tók af sameiginlega mælinum.

Engin tvö verkefni eru eins. Fjöldi bílastæða, rafmagnsheimtaug, aðgengi að rafmagni og þörf fyrir álagsstýringu hafa öll áhrif á lausnina og kostnaðinn.

Sendu okkur línu og við gerum tilboð sem er sniðið að aðstæðum þínum, án skuldbindinga.

Fá tilboð

Svona greiða notendur

Mánaðarlegur reikningur

Eftir hver mánaðamót færðu rafrænan reikning fyrir hleðslu síðasta mánaðar og kröfu í heimabankann.

Greiðsla með korti

Einnig má greiða reikninginn með korti í gegnum hlekk á honum eða vista kort á Mínum hleðslum. Vistað kort er aðeins skuldfært fyrir útgefnum reikningum, aldrei sjálfkrafa eftir áætlun.

Gestir greiða á staðnum

Gestir skanna QR-kóða á stöðinni og greiða með greiðslukorti, Google Pay eða Apple Pay. Hvorki þarf aðgang né app og það sem ekki er notað er endurgreitt.

Nánar í skilmálunum og á hjálparsíðunni.

Af hverju að skipta yfir í Hladdu?

Margir eigendur hleðslustöðva greiða meira fyrir rekstur og innheimtu en þeir átta sig á. Spurðu þig þessara spurninga.

  • Tekur þjónustuaðilinn 10% eða meira af hverri hleðslu í umsýslugjald?
  • Þurfa notendur og gestir að sækja app eða kaupa kort til að geta hlaðið?
  • Ertu bundinn kerfi frá einum framleiðanda hleðslustöðva?

Ef svarið er já við einhverri þeirra borgar sig að bera saman. Sendu okkur síðasta reikninginn frá núverandi þjónustuaðila og við sýnum þér hvað sama notkun kostar hjá Hladdu, án skuldbindinga.